|
Nýjasta
nýtt frá okkur:
02.08.2008
Nýtt
vídeó
gallerý
Búinn
að setja upp nýtt gallerý sem inniheldur nokkur vídeó. Hægt er
að skoða þessi vídeó með því að velja linkinn hérna fyrir ofan.
Bætt við jafn óðum og tækifæri gefst.
Kveðja,
Valdemar
02.08.2008
Nýtt myndagallerý hérna
Búinn
að setja upp nýtt gallerý. Hægt er að komast inn á það með því
að ýta á linkinn hér fyrir ofan. Myndum bætt við jafn óðum og
þær eru teknar af vélinni.
Annars er það að frétta að tröllið okkar vex hratt og vel og því til
staðfestingar þá er komin ein tönn. Eitthvað var það sem var
að trufla hana þessar síðustu nætur og þegar betur var gáð þá sást í
tönn. Hún berst gegn því að það sé farið með hana eins og
smábarn og vill bara sitja sjálf og helst af öllu standa. Er
að myndast við það að fara upp á fjórar og nú er bara spurning
hvenær hún kippir fæti inn fyrir og skríður fram á við en ekki aftur
á bak eins og venjulega. Nú hefur hún fengið mat þessar
síðustu vikurnar (sjá myndir í gallerýi) en sýnir honum ekki mikin
áhuga og fær þvílíkan hroll annað slagið að hún næstum dettur um
koll. Helst var það gulrótarstappan sem hún fékk í kvöld
sem hefur hitt í mark og meira farið af henni ofan í hana en utan á
hana. En við verðum víst að gefa þessum tíma og bara prufa
meira.
Kveðja,
Valdemar
04.01.2008
Allt fór af stað kl. 07 að morgni þann 31.12.07 sem er 2 vikum fyrir
settan tíma, og við vorum heima fram til kl. 18 en þá missti
Steinunn vatnið og við renndum upp á fæðingadeildina í Bergen og
vorum skráð þar inn kl. 19:00. Þetta gekk hægt og rólega til
að byrja með en stigmagnaðist með hverri hríð fram til miðnættis en
þá var ekki aftur snúið, hún ætlaði sér út sem fyrst. Með
þessa fínu flugeldasýningu í bakgrunninum fór allt af stað og kl.
01:38 kom hún í heiminn. Hún fæðist 51 cm og 3750 gr. eða 15
merkur. Hún fæðist sem fyrsti Bergensbúin á árinu 2008 og fyrsta
barn í Hordalandi og Sogn og Fjordana fylki. Við erum búin að
fá smá athygli vegna þess og höfum verið meðal annars í BT og BA sem
eru staðarblöðin hérna í Bergen og svo líka í NRK sem er eins og RUV
heima á íslandi.
Hún fæðist kl. 00:38 að íslenskum tíma og samvk. því er hún líklega
fyrsti íslendingurinn á árinu 2008.
Þeim heilsast vel núna en eru enn upp á fæðingadeild vegna þess að
hún greinist með snertu af gulu og var hún í ljósameðferð síðust
nótt en eins og staðan er í dag þá er þetta á réttir leið og nú er
bara að vona að þær komi heim í dag.
Kveðja,
Valdemar
19.12.2007
Jæja þá er það síðasta kvöldið fyrir flutning og þetta er okkar
síðasta kvöld með internetið/heimasíma fram til 02. janúar 2008.
Þannig að það verður lítið frá okkur að heyra þessa næstu daga, en
engar fréttir eru góðar fréttir. Við munum flytja á morgun og
koma okkur fyrir og reynum svo að taka því rólega næstu daga þar á
eftir ásamt að njóta jólanna ein í tröllakoti. En við verðum með
gemsana okkar, og ef eitthvað er þá er alltaf hægt að ná í okkur og
við í ykkur hin.
En eins og kemur fram hér fyrir neðan þá lofuðum við næsta staf í
kvöld og kannski smá "hint". Allt um það getið þið séð hér að
ofan.
Hérna er nokkrar
myndir
af húsinu sem við tókum í kvöld og nokkrar utimyndir koma kannski á
morgun ef við getum.
Við óskum öllum gleðilegra jóla og þökkum fyrir líðandi ár.
Kveðja,
Valdemar og Steinunn.
16.12.2007
Vegna fjölda áskoranna ákváðum við að setja inn nýjan bókstaf í
kvöld. Þær tillögur sem við höfum fengið hingað til hafa ekki
verið nálægt, en þar sem Soffía og Ólafur reyndu að stytta sér leið
og sendu okkur öll nöfn sem innihéldu bókstafinn Aa, þá er það ekki
tekið gilt þó að þau hafi haft nafnið á þeim lista eða gerðu þau
það.....;o)?
Hægt er að sjá næsta bókstaf hér að ofan.
Fengum lyklana að húsinu í dag. Nú virtist allt vera aðeins
stærra þar sem þau voru búin að tæma allt húsið og bílskúrinn líka.
Nú er það bara stóri flutningadagurinn næst og svo tökumst við á við
jólin eftir það. Eigandinn hitti Garp og Frigg í dag líka.
Hann varð voða hrifinn af Garpi og það er mikill léttir fyrir okkur.
það getur farið mikið fyrir honum kallinum (Garpi) og ef fólk verður
ekki hrætt við hann þá er það mjög hrifið af honum þar sem hann vill
svo vel, en bara einhvern veginn vill hann oft verða misskilinn.
Hann er soddan þumbi.
Kveðja,
Valdemar og Steinunn.
13.12.2007
Já við höfum fengið ansi margar getgátur í sambandi við nafnið,
en það sem ég meina með að hún eigi bókstafinn
Aa
í nafninu meðal annars, er að þessi bókstafur kemur fram í nafninu
en getur verði stór, lítill eða bæði en ekki endilega sem fyrsti eða
síðasti stafur. Vil líka taka það fram að ég, Valdemar, hafi
unnið þessa nafnabaráttu á endanum þannig að þessi "skrítnu" nöfn
hennar Steinu eru úr sögunni. Næsti bókstafur kemur á
mánudaginn og kannski smá "hint" ef þið eruð alveg út á túni :o)
Kveðja,
Valdemar og Steinunn.
12.12.2007
Hmmm......
Fengum sendar nokkrar myndir af mér á mínum fyrstu árum ásamt
vitnisburði frá Grunnskóla Bolungarvíkur frá 4. til 9. bekk.
Gegnumgangandi umsögn um skólagönguna var "þarf að sinna námi betur"
og "mætti leggja meiri rækt við námið". Vonandi er þetta ekki það sem koma skal
með dóttir okkar. Nú stólum við á Steinunnar gen.
Hægt er að sjá myndir af okkur á okkar fyrstu árum undir
linknum "myndir" hér að ofan. Eftir
síðasta samtal við gamla settið á Hólmavík var ýjað að því að það
hafi ekki verið mikill tími laus til að taka myndir af okkur
bræðrunum til að byrja með. Þess vegna væru nú ekki svo margar
myndir til. Eins og við höfum verði eitthvað erfiðir. Ef
svo þá hljótum við að hafa bætt það upp með hve sætir við vorum :o)
Kveðja,
Valdemar og Steinunn.
08.12.2007
Erum
búin að fara og skoða aftur húsið. Lítur
bara vel út og erum nokkuð spennt. Búið að skrifa undir
leigusamning þannig að nú er þetta frágengið og bara eftir að
flytja. Fáum að öllu
líkindum lyklana í kringum
15.-16. desember. Þá er bara að bretta upp ermar og flytja
fyrir jól og
halda jólin á nýjum stað. Þannig að frá og með þessum jólum verður
okkar nýja heimilisfang:
Knutavegen 10, 5200 Os, Norge.
Sama símanúmer, en við verðum því miður internetlaus frá því við
flytjum til 02. janúar 2008 og það þýðir að við verðum símalaus
heimavið þetta sama tímabil. En höfum alltaf gsm.
kveðja,
Valdemar og Steinunn.
|